Við leikskólann er starfandi foreldrafélag og eru allir foreldrar barna í Grænuborg aðilar að félaginu. Kosið er í stjórn á foreldrafundi að hausti. Um það bil tveir foreldrar eru í stjórn foreldrafélagsins frá hverri deild, samtals átta manns. Ráðið hittist einu sinni í mánuði og fjallar um hin ýmsu mál varðandi leikskólann. Leikskólastjóri situr fundina. Gjald er greitt foreldrafélagið, kr. 7.400 á ári á barn, veittur er 50% afsláttur fyrir annað barn. Stjórnin heldur utanum þessi gjöld og sér um að rukka þau inn. Peningurinn er notaður í hinar ýmsu uppákomur tengdar leikskólastarfinu, sem dæmi má nefna sveitaferð að vori og leikrit. Rukkað er í sjóðinn í gegnum heimabanka. Þeir foreldrar sem ekki eru með heimabanka geta greitt gjaldið hjá leikskólastjóra.
Stjórn foreldrafélags Grænuborgar 2021 - 2022
Inga Auðbjörg (mamma Starra á Stjörnudeilddeild), formaður
Signý (mamma Steinars á Sólskinsdeild), gjaldkeri
Margrét Erla (mamma Ragnheiðar Nínu á Dropadeild), ritari
Aðalheiður (mamma Vigdísar á Stjörnudeild)
Anna Helga (mamma Jóns Styrmis á Mánadeild)
Arnar Þór (pabbi Bjarka Benedikts á Mánadeild)
Arnhildur Lilý (mamma Elsu Sóleyjar á Mánadeild)
Justé (mamma Elisu á Sólskinsdeild)
Krzysztof Jerzy (pabbi Wöndu Inku á Dropadeild)
Sonja (mamma Ernis Leós á Dropadeild)
Gerður Sif, leikskólastjóri