|
Stjörnudeild, 08.febrúar 2012 |
|
|
Á fimmtudaginn var fórum við í þema og hreyfistund. Í þema gerðu Rauði og Guli hópur verkefni með dýr þar sem þarf að raða framenda og afturenda á dýrum rétt saman þ.e. klippa og líma. Græni hópur spjallaði um mismunandi gerðir dýra t.d. lappir og sporð, skinn og feld, svo fóru þau líka í leik þar sem plastdýrin eru sett í poka og þau fara með hendurnar inn í pokann, taka eitt dýr og reyna að giska hvaða dýr þau eru með í höndunum. Í hreyfistund fórum við í stöðvaþjálfun og bjuggum til stöðvar með kollhnís, grjónapokar (henda upp í loft og grípa, ganga með pokann á höfðinu o.s.frv.), trampólín og hjólabretti (breitt bretti á hjólum, lagst á magan og ýtt áfram með höndum).
Á föstudag stjórnuðum við söngsal með glæsibrag en Stóra valið féll niður vegna veikinda starfsfólks.
Á mánudag var Dagur leikskólans og fórum við öll út að faðma leikskólann okkar, myndir af því má finna á grænaborg.is. Það fóru einnig 4 börn í sulló.
Í gær þriðjudag var listasmiðja. Við bjuggum til tásumyndirnar sem hanga í fataklefanum. Þá fékk einn og einn í einu að stíga í málningu (sem var mjög blaut og sleip) og svo labba yfir blaðið og beint í lítinn bala þar sem ég aðstoðaði þau við að þvo sér. Þau voru sum ennþá með agnarögn af málningu á tásunum sem fer auðveldlega í næstu baðferð :) Þetta fannst þeim mjög skrítið og skemmtilegt. Um leið og við gerðum þetta spáðum við í litina og hvernið þeir breytast þegar þeim er blandað saman t.d. blár og gulur verða grænn og svo þegar blái og rauði blönduðust í vatninu varð vatnið fjólublátt.
Í dag er Gugga með tónlistarstund.
Nú hlýnar og kólnar til skiptis og vil ég minna alla á að hafa allar gerðir af útifötum og skófatnaði í leikskólanum, í gær sárvantaði pollagalla og stígvél hjá nokkrum.
Bestu kveðjur frá skemmtilegu Stjörnudeild :)
Hildur og Stjörnurnar
|
|
|
Dagur leikskólans |
|
|
Stjörnudeild, 1. febrúar |
|
|
Og þá er komin febrúar!!
Síðasta fimmtudag fórum við í hreyfistund en slepptum þema vegna veikinda starfsfólks. Í hreyfistund fórum við í skemmtilega hópleiki eins og stoppdans, stórt skip - lítið skip o.fl.
Á föstudeginum var söngsalur og hið árlega þorrablót Grænuborgar. Þá röðuðum við borðum í salinn og allur leikskólinn borðaði saman þorramat og svo fengu allir ís í eftirmat. Þetta er alltaf skemmtilegt og góð stemning. Myndir frá þorrablótinu eru komnar inn á graenaborg.is undir Stjörnudeild.
Á mánudaginn fóru 8 börn í sulló og í gær þriðjudag fóru allir í listasmiðju. Í listasmiðju teiknuðum við myndir af uppáhalds dýrinu okkar og máluðum þau svo með vatnslitum, mjög gaman.
Í dag er tónlist hjá Guggu :)
Eitthvað hefur borið á því að börnin hafa komið með smádót að heiman og ef til vill geymt það í vasanum. Þetta dót truflar þau og önnur börn og langbest er að dótið sé heima. Gleðifréttirnar eru að það er dótadagur núna á föstudaginn 3. febrúar :)
Bestu kveðjur
Hildur og Stjörnurnar
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 1 af 72 |