Við leikskólann er starfandi foreldrafélag og eru allir foreldrar barna í Grænuborg aðilar að félaginu. Kosið er í stjórn á foreldrafundi að hausti. Um það bil tveir foreldrar eru í stjórn foreldrafélagsins frá hverri deild, samtals átta manns. Ráðið hittist einu sinni í mánuði og fjallar um hin ýmsu mál varðandi leikskólann. Leikskólastjóri situr fundina. Gjald er greitt foreldrafélagið, kr. 7.400 á ári á barn, veittur er 50% afsláttur fyrir annað barn. Stjórnin heldur utanum þessi gjöld og sér um að rukka þau inn. Peningurinn er notaður í hinar ýmsu uppákomur tengdar leikskólastarfinu, sem dæmi má nefna sveitaferð að vori og leikrit. Rukkað er í sjóðinn í gegnum heimabanka. Þeir foreldrar sem ekki eru með heimabanka geta greitt gjaldið hjá leikskólastjóra.
Stjórn foreldrafélags Grænuborgar 2020 - 2021
Hlynur (pabbi Hrannar á Sólskinsdeild), formaður
Axel (pabbi Margrétar Maríu á Sólskinsdeild)
Hildur (mamma Rögnvaldar á Sólskinsdeild)
Þórunn (mamma Stígs á Mánadeild)
Arnhildur Lilý (mamma Elsu Sóleyjar á Dropadeild)
Arnar Þór (pabbi Bjarka Benedikts á Dropadeild)
Signý (mamma Steinars á Sólskinsdeild), gjaldkeri
Inga Auðbjörg (mamma Starkaðs á Mánadeild)
Gerður Sif, leikskólastjóri